Föstudagur , 4. Júní 2010 - 11:42
Dóra Stefánsdóttir verkefnisstjóri Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands

Undanfarnar vikur höfum við starfsmenn Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands heimsótt grunn- og framhaldsskóla um allt land og sýnt útskriftarnemendum hvernig þeir geta búið til ferilskrá á netinu með evrópsku sniði sem kallast Europass. Menntaáætlun Evrópusambandsins styrkir þetta átak myndarlega enda hefur verið lögð mikil vinna í að búa til ferilskrá sem hentar jafnt þeim sem eiga að baki langa starfsævi og þeim sem eru að taka sín fyrstu spor á...

Mánudagur , 19. Apríl 2010 - 15:47
Náms- og starfsráðgjafar á Suðurnesjum
Mikil fjölgun hefur verið í stétt náms- og starfsráðgjafa á síðustu árum. Fyrir stuttu voru fimm menntaðir aðilar hér á svæðinu en nú eru þeir fimmtán. Auk þess eru fjórir einstaklingar héðan í námi á þessu sviði. Náms- og starfsráðgjafar starfa í grunnskólum, Fjölbrautaskólanum, hjá Keili, fræðsluviði Reykjanesbæjar, Miðstöð símenntunar á Suðuresjum, Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja og einn starfar í leikskóla. Þessir aðilar eiga margt sameiginlegt og hafa ákveðið að hittast reglulega í vetur og deila reynslu sinni sem eflaust mun stuðla að öflugra og faglegra starfi er kemur samfélaginu til góða.
Mánudagur , 19. Apríl 2010 - 14:02
Ágústa Ingþórsdóttur
Gagnsemi náms- og starfsráðgjafar fyrir farsælt náms- og starfsval hefur verið viðfangsefni margra rannsókna. Niðurstöður hafa sýnt að nemendur sem hafa fengið náms- og starfsráðgjöf eru líklegri til að hafa meiri metnað og ljúka frekar námi en þeir sem ekki fengu slíka ráðgjöf. Einnig eru þeir líklegri til að verða færari í að taka ákvarðanir um nám og störf og haldast frekar í þeim störfum sem þeir velja sér.