FRÆÐSLUFUNDIR
Fræðsludagskrá Félags náms- og starfsráðgjafa vorið 2011
Febrúar Samráðsfundir náms- og starfsráðgjafa í umsjón fagráðanna. Fjórir aðskildir fundir fyrir náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og atvinnulífi þar sem hagsmuna- og fagleg málefni eru til umræðu.
10. mars
Fræðsluerindi frá Siðanefnd FNS. Kl. 14.00-16.00. Fundurinn verður á Háskólatorgi Háskóla Íslands í stofu HT300, 3. hæð.
31. mars
Arnar Þorsteinsson náms- og starfsráðgjafi segir frá vinnu sinni við nýjan gagnabanka fyrir grunnskólaráðgjafa. Staðsetning auglýst síðar en fundurinn verður kl. 14.30-16.00
13. apríl
Fyrirlestur um tölvufíkn kl. 14.30-16.00. Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson grunnskólakennari heldur fyrirlestur um tölvufíkn. Þorsteinn hefur haldið upplýsinga-og forvarnarfyrirlestra um efnið í nokkur ár auk þess sem hann þekkir tölvufíkn af eigin raun. Upplýsingar um staðsetningu koma síðar.
3. maí
Aðalfundur FNS kl. 14:00-16:00. Dagskrá auglýst síðar.
13. maí
Vornámskeið sem sniðið verður að þörfum náms- og starfsráðgjafa. Útivist og fræðsla. Staðsetning: Háskólinn á Bifröst en nánari upplýsingar koma síðar.
--------------------------------------------
Fræðsludagskrá Félags náms- og starfsráðgjafa haustið 2010
6. október
Fræðslufundur - Myndlistaskólinn í Reykjavík, Hringbraut 121
Myndlistaskólinn í Reykjavík býður Félagi námsráðgjafa til kynningar á nýju námi í skólanum.
Kynningin fer fram í húsnæði skólans að Hringbraut 121, miðvikudaginn 6.okt kl 14.30
Um er að ræða tveggja ára diplómanám til háskólaeininga (jafngilt 120 ECTS) í efnistengdu hönnunarnámi. Námið skiptist í 3 deildir, teiknideild og textíldeild sem hófu göngu sína í haust 2010 og Mótun – leir og tengd efni sem hefur verið kennt síðan haustið 2007.
Einnig verður kynnt undirbúningsdeild fyrir nám á háskólastigi. Það er 1 árs grunnnám í myndlist á framhaldsskólastigi. Deildarstjórar þessara deilda munu kynna deildirnar en að auki gefst kostur á að skoða verkstæði skólans.
20. október
Dagur náms- og starfsráðgjafa - Sjónarhóll, veislusalur Nauthóls, Nauthólsvegi 106
„Hver er sinnar streitu smiður“
Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur
Kl. 9:30-12:00
Hádegisverður á milli klukkan 12:00 og 13:00
„Ósiðir og Fíknir, vandræða árátta og verkfæri til lausna“
Kári Eyþórsson, ráðgjafi
Kl. 13:00-14:30
11. nóvember
Fræðslufundur - Staðsetning auglýst síðar.
„Heildræn ráðgjöf” – ferðalag til Finnlands o.fl.
Anna Sigurðardóttir segir frá ráðstefnu sem hún fór á í Finnlandi um heildræna ráðgjöf, síma- og netráðgjöf.
Kl. 14:30- 16:00.
26. nóvember
Jólafundur
Nánari dagskrá og staðsetning auglýst síðar.
Kl. 15:00-17:00

