Kveðjur til náms- og starfsráðgjafa í grunn- og framhaldsskólum frá Europass hópnum

Höfundur: 
Dóra Stefánsdóttir verkefnisstjóri Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands
Grein: 

Undanfarnar vikur höfum við starfsmenn Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands heimsótt grunn- og framhaldsskóla um allt land og sýnt útskriftarnemendum hvernig þeir geta búið til ferilskrá á netinu með evrópsku sniði sem kallast Europass. Menntaáætlun Evrópusambandsins styrkir þetta átak myndarlega enda hefur verið lögð mikil vinna í að búa til ferilskrá sem hentar jafnt þeim sem eiga að baki langa starfsævi og þeim sem eru að taka sín fyrstu spor á vinnumarkaðnum. Nemendur í margmiðlunarhönnun í Borgarholtsskóla bjuggu til myndband fyrir okkur með aðstoð kennara sinna um hvernig best er að gera ferilskrána og settu á YouTube. Sýndum við nemendunum myndbandið og spjölluðum við þau um það hvers vegna mikilvægt væri að gera ferilskrá og að hvaða leyti Europass ferilskráin væri ólík öðrum.
Alls höfum við heimsótt rúmlega 60 skóla og hitt vel á annað þúsund nemendur auk fjölmargra náms- og starfsráðgjafa, kennara, skólastjórnenda og annarra starfsmanna skólanna. Nemendahóparnir sem við hittum voru allt frá fimm einstaklingum og upp í 60 manns, allt eftir fjölda nemenda á hverjum stað. Með þessu greinarkorni langar okkur að þakka fyrir þær frábæru móttökur sem við höfum hvarvetna fengið. Sérlega ánægjulegt var að hitta hina efnilegu æsku landsins sem lætur ekki tímabundna efnahagserfiðleika aftra sér frá því að hafa stórar fyrirætlanir um framtíðina og er tilbúin að leggja ýmislegt á sig til að ná settu marki.
Þegar hugmyndin um að kynna gerð ferilskrár í grunnskólum og jafnvel framhaldsskólum var fyrst rædd fyrir nokkrum árum þótti mörgum hún vera mesta fásinna, fólk á þessum aldri hefði lítið eða ekkert að setja í slíka skrá. Á þeim tíma var þetta hins vegar ekki rétt. Í þeim skólum á höfðuborgarsvæðinu sem þá voru heimsóttir var um það bil helmingur nemenda sem vann með skólanum, í sjoppum, við barnapössun, við að bera út blöð og fleira þess háttar. Öll unnu þau á sumrin, kunnu heilmikið í tungumálum og voru geysilega flink á tölvur og flest gátu fært inn upplýsingar um uppbyggileg áhugamál og tómstundastarf. Störfum utan skóla hefur vissulega fækkað og sérlega virðast unglingar eftir fyrsta og annan vetur í framhaldsskóla eiga erfitt með að finna sumarstörf. Ástandið víða um land virðist þó misjafnt hvað þetta varðar og sem betur fer er víða nóg um uppbyggileg og jafnvel vel launuð störf fyrir ungt og áhugasamt fólk. Jafnvel þeir sem ekki eru svo heppnir  virðast hins vegar nýta tímann til þess að bæta við sig ýmsu því sem nýtast mun þeim á vinnumarkaðnum í framtíðinni. Tölvulæsi þeirra er t.d. mun meiri en okkar sem eldri eru og ensk tunga er þeim næstum eins eðlileg  og hið íslenska móðurmál.
Á sama tíma biðja atvinnurekendur nú í æ stærra mæli um einhver gögn frá öllum þeim sem sækja um störf. Helst vilja þeir fá bæði ferilskrá og meðmæli frá skólum eða öðrum atvinnurekendum. Auðvitað er hægt að gera ferilskrána t.d. í ritvinnsluforriti en seint verður of oft ítrekað að hún verður að líta vel út, vera rétt stafsett og brýnt er að telja allt með sem fólk kann og getur. Við erum full trúar á hið unga fólk sem þetta land byggir og óskum því alls velfarnaðar.
Fyrir þá sem misstu af einhverjum ástæðum af heimsókn okkar má benda á vefinn http://europass.is/ þar sem á krækjunni Europass ferilskrá má finna bæði kynningarmyndbandið og leið inn á vefinn til þess að gera Europass ferilskrána eða uppfæra hana. Við munum einnig reyna í framtíðinni að heimsækja fleiri skóla berist okkur óskir þess efnis.
Dóra Stefánsdóttir verkefnisstjóri, Margrét K. Sverrisdóttir verkefnisstjóri og Ársæll Þorsteinsson tímabundinn starfsmaður.

Dóra Stefánsdóttir verkefnisstjóri Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands
Dunhaga 5
107 Reykjavik
sími 525 4290
símbréf 552 8801