Sjálfsstyrking í grunnskólum
Höfundur:
Höfundur: Sigríður Bílddal, náms- og starfsráðgjafi í grunnskóla. Grein:
Sjálfsskoðun og sjálfsþekking er nauðsynleg hverjum manni til að takast á við lífið á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Öll þurfum við að sigrast á erfiðleikum í lífinu og við höfum val hvernig við tökumst á við þá. Fyrir nemendur í grunnskólum reynist stundum erfitt að takast á við það sem upp kemur í samskiptum í skólastarfinu.
Í Holtaskóla í Reykjanesbæ hefur undanfarin ár verið boðið upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir nemendur skólans. Skólaárið 2006-2007 tók allur 7. bekkur þátt í námskeiðunum og í ár er það 6. bekkur sem situr námskeiðið fyrir áramót en 7. bekkur eftir áramót. Sjálfsstyrkingin byggir á námsefni frá Baujunni en þar er áherslan á tilfinningakennslu og að hver og einn beri ábyrgð á eigin líðan og hegðun. Markmiðið er að nemendur geti tekist á við erfiðar tilfinningar og losað sig við þær til að hleypa gleðinni inn.
Námsefnið er sett upp sem sex vikna námskeið þar sem náms- og starfsráðgjafi hittir fjögurra manna hóp nemenda einu sinni í viku í 80 mínútur í senn. Hóparnir eru kynskiptir. Námskeiðin eru á skólatíma. Nemendum eru kenndar aðferðir til að stjórna eigin tilfinningum og fá í hendur leynivopn til að takast á við það sem upp kemur. Þar má nefna að nota hugarslæðu til að afmarka tilfinningar sínar frá öðrum. Slökunaröndun er stóri hluti námskeiðsins og fá nemendur þjálfun í að nýta sér hana þegar á þarf að halda t.d. í prófum ef kvíði kemur upp.
Fyrir utan námsefnið er tekist á við ágreiningsefni sem koma upp t.d. samskiptavanda í vinahópi. Þar er hægt að kenna nemendum leiðir til leysa ágreining og að það sé gott að geta sagt það sem manni finnst án þess þó að særa aðra.
Starfsfólk skólans fær kynningu á því sem um ræðir og getur einnig tekið þátt í að hvetja nemendur og styrkja þá í að stjórna tilfinningum og þar af leiðandi hegðun.
Áður en námskeiðin fara af stað er haft samband við foreldra þannig að þeir viti hvað um er að ræða og nemendum bent á að ræða heima um það sem fram fer.

