Starf við náms- og starfsráðgjöf heillar marga

Höfundur: 
Náms- og starfsráðgjafar á Suðurnesjum
Grein: 
Náms- og starfsráðgjafar á Suðurnesjum – SNOS: Mikil fjölgun hefur verið í stétt náms- og starfsráðgjafa á síðustu árum. Fyrir stuttu voru fimm menntaðir aðilar hér á svæðinu en nú eru þeir fimmtán. Auk þess eru fjórir einstaklingar héðan í námi á þessu sviði. Náms- og starfsráðgjafar starfa í grunnskólum, Fjölbrautaskólanum, hjá Keili, fræðsluviði Reykjanesbæjar, Miðstöð símenntunar á Suðuresjum, Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja og einn starfar í leikskóla. Þessir aðilar eiga margt sameiginlegt og hafa ákveðið að hittast reglulega í vetur og deila reynslu sinni sem eflaust mun stuðla að öflugra og faglegra starfi er kemur samfélaginu til góða. Fólk aðstoðað við að finna sinn farveg Mikil þróun hefur verið hin síðari ár þegar kemur að störfum náms- og starfsráðgjafa. Fjölgun hefur orðið á stöðugildum þeirra í skólakerfinu og með nýjum áherslum í tengslum við stuðning við atvinnulífið þá fjölgar þeim ráðgjöfum sem starfa þar. Því má spyrja hvað þessi hópur eigi sameiginlegt? Er ekki gjörólíkt að starfa með börnum í grunnskóla og á Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum? Svarið er bæði já og nei, segja þær Sigríður Bílddal og Anna Lóa Ólafsdóttir. Sigríður er náms- og starfsráðgjafi í Holtaskóla og Anna Lóa hjá Miðstöð símenntunar. Á báðum stöðum er fólk aðstoðað við að finna sinn farveg í lífinu í námi og eða starfi. Á báðum stöðum er leitast við að tengja saman áhuga einstaklinga við námsleiðir eða störf, setja markmið og aðstoða einstaklinga við að finna leið sína að markmiðinu. Á báðum stöðum er verið að vinna með sjálfsmynd einstaklinga og leiðir til að efla hana ef þarf. Eini munurinn er aldurinn og hvernig unnið er á mismunandi hátt eftir því hvort verið er að vinna með börnum, unglingum eða fullorðnu fólki sem hefur reynslu af vinnumarkaði. Best er talið að náms- og starfsráðgjöf sé samhangandi ferli frá barnæsku fram til fullorðinsára. Aukin þörf fyrir ráðgjöf Anna Lóa segir að þörfin fyrir náms og starfsráðgjöf fyrir utan hið hefðbundna skólakerfi hefur aukist mjög mikið. Náms- og starfsframboð hafi verið mikið og þörf á að fræða fólk á hinum almenna vinnumarkaði um þá möguleika og leiðir sem í boði eru til að auka hæfni sína á vinnumarkaði. „Hin síðari ár hefur það komið í hlut símenntunarmiðstöðva að sinna því hlutverki að nálgast hinn almenna launþega sem ekki hefur aflað sér neinnar formlegrar menntunar og kynna aukna námsmöguleika sem í boði eru. Miðstöð símenntunar býður upp á ókeypis náms- og starfsráðgjöf og ég hvet fólk eindregið til að nýta sér hana,“ segir Anna Lóa. Hún segir Suðurnesjamenn hafa tekið þessari þjónustu opnum örmum og rúmlega 500 manns hafi nýtt sér hana að einhverju leyti. Sigríður segir að miklar breytingar á vinnumarkaði geri kröfu til fólks um færni til að vega og meta hvað það er sem henti. Þessi færni sé ekki meðfædd en hægt að læra hana. „Gera má ráð fyrir því að einstaklingar þurfi að velja sér nám og störf alla ævi svo ekki sé talað um möguleika í símenntun til að efla sig í starfi. Því er nauðsynlegt vera með fræðslu í grunnskólum um nám og störf frá upphafi til loka og kenna nemendum færni til að velja í samræmi við áhugasvið og hæfileika. Það þarf ekki að líta lengra en til þess sem er að gerast hér hjá okkur t.d. í bankageiranum. Þar er fólk sem stendur frammi fyrir því að leita nýrra leiða í starfi,“ segir Sigríður. Þær Anna Lóa og Sigríður voru sammála um það að fjölgun starfsstéttarinnar á svæðinu væri mjög jákvæð þróun og á tímum mikilla breytinga þyrfti samstillt átak sem flestra. Þar væru náms- og starfsráðgjafar afar mikilvægur hlekkur.