Tækifæri til starfa - Endurhæfing skilar árangri
Höfundur:
Hulda Steingrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi starfar á Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar Grein:
Í tilefni af degi náms- og starfsráðgjafar, 20. október
Hulda Steingrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi starfar á Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar við verkefnið Atvinna með stuðningi.
Náms- og starfsráðgjafar starfa víða í samfélaginu. Einn vettvangurinn er í endurhæfingu fólks til starfa. Verkefnið Atvinna með stuðningi (AMS) felst í að aðstoða fólk með skerta vinnugetu við að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Þjónustan er einstaklingsbundin og sniðin að þörfum hvers og eins. Fólk fær aðstoð við að finna starf við hæfi og stuðning á nýjum vinnustað. Við starfsval er tekið tillit til áhuga, hæfni og þekkingar einstaklingsins. Aðstoðin er mest í byrjun þegar starfsmaður byrjar í starfi, en alltaf er hægt að hafa samband og leita eftir aðstoð ef á þarf að halda.
Flestir sem hafa skerta vinnugetu hafa áhyggur af því að geta ekki skilað vinnuframlagi á við aðra. Þá er gott að fá aðlögunartíma og geta svo bætt smátt og smátt við sig verkefnum eftir því sem úthaldið vex. Þegar fólk er farið að vinna kemur yfirleitt í ljós að það getur miklu meira en það hélt í upphafi. Það er gaman að sjá breytinguna hjá fólki eftir að það byrjar í vinnu, sjálfstraustið eykst og það blómstrar í starfi.
Samkvæmt nýjum lögum um vinnumarkaðsaðgerðir frá 2006 á starfsemi AMS að flytjast til Vinnumálastofnunar, en starfsemin er nú eitt af verkefnum Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar. Síðastliðin tíu ár hefur Akureyrarbær annast málefni fatlaðra, samkvæmt málefnasamningi við ríkið. Á þessu tíu ára tímabili hefur náðst góður árangur í þverfaglegri vinnu og samþættingu verkefna samkvæmt félagsþjónustulögum og lögum um málefni fatlaðra. Markmiðið er að allir fái þjónustu við hæfi og aðstoð til sjálfshjálpar, sama hvaða lögum málið tilheyrir. Vonandi getur reynsla okkar hjá Akureyrarbæ nýst í þeim breytingum sem framundan eru á tryggingakerfinu.
Samkvæmt skýrslu nefndar á vegum forsætisráðuneytisins, sem út kom 5. mars 2007, eru stjórnvöld nú að undirbúa breytingar á örorkumati og endurhæfingu. Markmiðið verður að fólk komist sem fyrst út á vinnumarkaðinn aftur. Endurhæfing þarf að hefjast eins fljótt og unnt er. Þjónustan þarf að vera samfelld og einstaklingsmiðuð, með eftirfylgni eftir að út í atvinnulífið er komið. Samfara þessum breytingum á örorkumati og endurhæfingu verður þörf á aukinni þverfaglegri vinnu félags- og heilbrigðisstétta og náms- og starfsráðgjafar koma til með að gegna þar mikilvægu hlutverki.
Það er óskandi að þessar fyrirhuguðu breytingar á tryggingakerfinu verði til þess að gera kerfið einfaldara og skilvirkara og færa það til nútímans. Horft verði á sjálfstæði hvers einstaklings og þörf hans fyrir tekjur ekki metin eftir því hvort hann býr einn eða með öðrum fullorðnum. Vonandi berum við gæfu til að skapa samfélag þar sem samhjálp og sveigjanleiki ríkir bæði á vinnumarkaði og annarsstaðar þar sem allir hafa ávinning.

