Tengsl starfshugsunar og brotthvarfs - Occupational Thinking and Its Relation to School Dropout

Höfundur: 
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir
Grein: 

Í nýjasta hefti fræðitímaritsins Journal of Career Development birtist grein eftir Dr. Guðbjörgu Vilhjálmsdóttur; Occupational thinking and its relation to school dropout.

Markmiðið með þessari langtímarannsókn Guðbjargar var að skoða hvort að litlar framfarir í skipulagningu starfshugsunar í 10. bekk hafi áhrif á brotthvarf nemenda. Skipuleg starfshugsun er flokkandi og kerfisbundin, s.s. eins og ábyrgð í starfi og há laun fara yfirleitt saman, en óskipuleg starfshugsun er óreiðukennd. Úrtakið samanstóð af 377 nemendum á aldrinum 15-16 ára. Til að meta framfarir í skipulagðri starfshugsun var notuð "repertory grid" aðferð Kellys sem mælir hugsmíðir starfa. 

Safnað var upplýsingum um námsferil nemenda átta árum eftir að þátttakendur voru í 10. bekk, þ.e. þegar þeir voru 23 ára til að skoða hvort framfarir í starfshugsun yki líkur á á útskrift úr framhaldsskóla. 

Niðurstöður sýna áhrif á brotthvarf eftir kyni og einkunnum. Samanburður á útskriftarhóp og brotthvarfshóp sýndi að framfarir í starfshugsun á aldrinum 15-16 ára spá fyrir um útskrift úr starfsnámi í samanburði við brotthvarf, að teknu tilliti til félagslegra þátta og einkunna. 

Niðurstöðurnar eru mikilvægar fyrir starfandi náms- og starfsráðgjafa og skipuleggjendur náms- og starfsfræðslu í grunnskólum og ættu að vera þeim hvatning til að  efla náms- og starfsfræðslu fyrir unglinga.

Áhugasamir geta nálgast greinina hér 

http://jcd.sagepub.com/content/early/2010/03/05/0894845309357052.full.pdf+html