| F | ||
|---|---|---|
Start: 19/01/2012 17:00
Skólastjórnendur og náms- og starfsráðgjafar níu grunnskóla í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti bjóða framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu að taka þátt í sameiginlegum kynningardegi á framhaldsnámi. Slíkan kynningardag höfum við haldið undanfarin ár en dagurinn er hugsaður sem tækifæri fyrir nemendur 9. og 10. bekkja og forráðamenn þeirra til að kynna sér saman og á einum stað það framhaldsnám sem í boði er. | ||

