5.5.2010 - Aðalfundur FNS

Aðalfundur FNS var haldinn fimmtudaginn 29.apríl kl. 14.00 í húsnæði Mímis símenntunar Skeifunni 8. Á fundinum flutti Björg Kristjánsdóttir formaður FNS ársskýrslu félagsins og Eydís Katla Guðmundsdóttir gjaldkerfi félagsins fór yfir ársreikninga félagsins fyrir árið 2009. Þrír stjórnarmeðlimir hættu í stjórn og einn úr fræðslunefnd og voru nýir aðilar kosnir í staðinn.
Þá var kynnt ný heimasíða félagsins sem margir höfðu beðið eftir. Ólafur Haraldsson náms- og starfsráðgjafi Fjölbrautarskóla Vesturlands hefur haft umsjón með gerð síðunnar og kynnti hann síðuna á fundinum og þær nýjungar hún hefur upp á að bjóða.
Fundarstjóri var Sigrún Ágústsdóttir náms- og starfsráðgjafi Réttarholtsskóla.