Ráðstefna um raunfærnimat
Föstudaginn 3. september n.k. verður haldin ráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík á vegum Norræna tengslanetsins um nám fullorðinna og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Ráðstefnan hefst kl. 10:00 og henni lýkur kl. 16:00. Áhersla verður á að kynna stöðuna í raunfærnimati á Norðurlöndunum og hvernig staðið er að raunfærnimati á sviðum sem við höfum ekki hafið raunfærnimat í hér á landi. Dagskrá ráðstefnunnar er í viðhengi. Smellið hér til að skrá ykkur. Þátttaka er ókeypis.

