Starfsþjálfun og vettvangsheimssóknir

Náms-og starfsráðgjafar í framhaldsskólum.  

Bréfið hér fyrir neðan fór til skólameistara fyrir síðustu mánaðarmót frá formanni FF.
Eins og kemur fram í þessu bréfi er KÍ okkar samningsaðili og hefur því miður ekki ennþá getað komist að samkomulagi við háskólann fyrir okkar hönd þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Þar til samningur liggur fyrir er vænst til að náms-og starfsráðgjafar haldi að sér höndum varðandi starfsþjálfun annars árs nema og vettvangsheimssóknir fyrsta árs nema í náms-og starfsráðgjöf.

F.h. stjórnar FNS
Björg Kristjánsdóttir formaður FNS


I.Vettvangsnám nema í náms- og starfsráðgjöf í framhaldsskólum
Eins og kunnugt er hyggst HÍ/Félagsvísindasvið gera samninga við einstaka framhaldsskóla um vettvangsnám nema í náms- og starfsráðgjöf. Hefur stéttarfélagið áður skrifað skólameisturum um þessar fyrirætlanir og hvatt þá til að gera ekki samninga um vettvangsnámið fyrr en KÍ og HÍ hefðu gengið frá samningum um kjör náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum við að leiðbeina nemum.

Að undanförnu hafa átt sér stað samræður milli KÍ og HÍ um þetta sem hafa enn sem komið er ekki borið árangur. Er ágreiningur um hverjir séu réttir samningsaðilar um kjör náms- og starfsráðgjafa vegna vettvangsnáms nema og vinnur KÍ að því að fá úr þessu skorið.

Stéttarfélagið undirstrikar að samningsrétturinn er á hendi KÍ vegna starfa félagsmanna KÍ í framhaldsskólum við náms- og starfsráðgjöf og að óheimilt er að undirbjóða kjarasamninga um einingaverð vinnu félagsmanna.

Stéttarfélagið leggur áherslu á að framhaldsskólar bíði með samninga við HÍ þar til mál skýrast. Félagið hvetur jafnframt skólameistara að koma þeirri afstöðu til forsvarsmanna HÍ.