Fræðslufundur - Myndlistaskólinn í Reykjavík

06/10/2010 14:30
Europe/London

Myndlistaskólinn í Reykjavík býður Félagi námsráðgjafa til kynningar á nýju námi í skólanum.
Kynningin fer fram í húsnæði skólans að Hringbraut 121, miðvikudaginn 6.okt kl 14.30
 
Um er að ræða tveggja ára diplómanám til háskólaeininga (jafngilt 120 ECTS) í efnistengdu hönnunarnámi. Námið skiptist í 3 deildir, teiknideild og textíldeild sem hófu göngu sína í haust 2010 og Mótun – leir og tengd efni sem hefur verið kennt síðan haustið 2007.
 
Einnig verður kynnt undirbúningsdeild fyrir nám á háskólastigi. Það er 1 árs grunnnám í myndlist á framhaldsskólastigi. Deildarstjórar þessara deilda munu kynna deildirnar en að auki gefst kostur á að skoða verkstæði skólans.
 
F.h. fræðslunefndar FNS,
 
Sigrún Garcia Thorarensen
Náms- og starfsráðgjafi Rimaskóla
Sími: 411-7720
Sigrun.Garcia.Thorarensen@reykjavik.is