Framhaldsskólakynning austurbæ

19/01/2012 17:00
Europe/London

Skólastjórnendur og náms- og starfsráðgjafar níu grunnskóla í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti bjóða framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu að taka þátt í sameiginlegum kynningardegi á framhaldsnámi.

Slíkan kynningardag höfum við haldið undanfarin ár en dagurinn er hugsaður sem tækifæri fyrir nemendur  9. og 10. bekkja og forráðamenn þeirra til að kynna sér saman og á einum stað það framhaldsnám sem í boði er.

Fyrirkomulag kynningarinnar verður með sama hætti og áður; hver skóli fær aðstöðu þar sem tækifæri gefst til kynningar t.d. í formi Power Point, myndbands, bæklinga o.þ.h. Mikilvægt er að fulltrúar frá öllum skólunum verði á svæðinu og kynni sinn skóla.

Kynningardagurinn er fyrirhugaður fimmtudaginn 19. janúar n.k. í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti milli kl. 17 og 19. Tengiliður er Guðný í Seljaskóla gudny.thuridur.palsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-7500.

Með kveðju,

Arnar - Ölduselsskóla,
Björk – Sæmundarskóla,
Guðný – Seljaskóla,
Guðrún Erla - Fellaskóla,
Guðrún Þóra og Linda – Árbæjarskóla,
Guðrún – Norðlingaskóla,
Ingveldur Gyða – Breiðholtsskóla,
Sigríður Magnea – Hólabrekkuskóla,
Svandís – Ingunnarskóla.