Framhaldsskólakynning vesturbæ og Seltjarnarnesi
24/01/2012 17:00
Europe/London
Skólastjórnendur og náms- og starfsráðgjafar grunnskóla í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi bjóða framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu að taka þátt í sameiginlegri kynningu á framhaldsnámi.
Kynningardagurinn er fyrirhugaður þriðjudaginn 24. janúar n.k. í Valhúsaskóla milli kl. 17 og 18:30.
Fyrirkomulag kynningarinnar verður með sama hætti og áður; hver skóli fær aðstöðu þar sem tækifæri gefst til kynningar t.d. í formi Power Point, myndbands, bæklinga o.þ.h. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst og látið vita hvort þið óskið eftir að vera í kennslustofu eða í opnu rými.
Ásdís Lovísa Grétarsdóttir náms- og starfsráðgjafi Hagaskóla
Rannveig Óladóttir, náms- og starfsráðgjafi Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla

