Íslandsmót iðn- og verkgreina
Sæl öll
Allir skólastjórar í Reykjavík hafa fengið kynningu á Íslandsmóti iðn- og verkgreina og fengu meðfylgjandi bréf í framhaldi.
Það er ekki síður upplýsandi fyrir náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum að fá þetta bréf þar sem keppendurnir eru þaðan.
kv
Þór
------------------------------------
Ágæti skólastjóri
Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í húsnæði Háskólans í Reykjavík föstudaginn 9. og laugardaginn 10. mars næstkomandi.
Mótið er haldið undir stjórn Verkiðnar sem hefur það markmið að kynna iðn- og verknám fyrir ungu fólki.
Íslandsmótið hefur verið að þróast á hverju ári í sífellt stærri og skemmtilegri viðburð.
Markmið okkar þetta árið er að bjóða nemendum í grunnskólum landsins sérstaklega velkomna.
Því verða í boði rútuferðir til og frá skóla á föstudeginum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk á höfuðborgarsvæðinu.
Á keppnissvæðinu verða verkefni keppenda kynnt fyrir nemendum hver grein verðu kynnt sérstaklega og nemendum fá að spreyta sig á þrautum sem sérstaklega eru fyrir gesti til að fá betri tilfinningu fyrir keppnisgreinunum.
Stjórn Verkiðnar óskar eftir því að skólastjórnendur taki vel í þetta boð okkar og sendi nemendur á staðin í skipulagðar ferðir á föstudeginum en hver ferð tekur u.þ.b. 2 klst.
Við þurfum að vita hversu margir koma til þess að skipuleggja ferðirnar og biðjum ykkur því að hafa samband við Þór Pálsson á netfangið thor.palsson@idnskolinn.is eða í síma 659 1461
Fyrir hönd stjórnar Verkiðnar
Björn Ágúst Sigurjónsson

