Opið hús Borgarholtsskóla

08/03/2012 17:00
Europe/London

Þann 8. mars kl. 17:00-19:00 verður grunnskólanemendum og foreldrum/forráðamönnum þeirra boðið að koma og skoða Borgarholtsskóla, fá upplýsingar um námið og félagslífið, spjalla við skólastjórnendur, náms- og starfsráðgjafa og nemendur. Húsnæði skólans verður sýnt og skemmtilegar uppákomur verða á vegum nemenda.

Bestu kveðjur,Ágústa og Óttar, náms- og starfsráðgjafar