Uppskeruhátíð námsbrautar í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands

14/09/2010 12:30
Europe/London

Þriðjudaginn 14. september nk. kl. 13-16 verður haldin uppskeruhátíð námsbrautar í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands þar sem meistaranemar kynna niðurstöður lokaritgerða sinna. Hátíðin er samstarfsverkefni námsbrautar í náms- og starfsráðgjöf og Félags náms- og starfsráðgjafa.

Rannsóknir nemenda og kennara við námsbrautina leika lykilhlutverk í eflingu þekkingargrunns greinarinnar og styrkja náms- og starfsráðgjafa í faglegu starfi. Nýbakaðir meistarar leggja þar að auki íslensku samfélagi lið með rannsóknum sínum og aukinni þekkingu á þörfum fólks og því sem gagnast best við náms- og starfsráðgjöf. Uppskeruhátíðin er því tilvalin fyrir starfandi og verðandi náms- og starfsráðgjafa, sem og aðra áhugasama til að kynna sér nýjustu rannsóknir á sviðinu og auka þannig við sína eigin þekkingu.

Uppskeruhátíðin fer fram í Námunni, sal Endurmenntunar Háskóla Íslands við Dunhaga, og er öllum opin.

 

Dagskrá er sem hér segir: Kl. 12:30 - Setning
  • Björg Kristjánsdóttir, formaður Félags náms- og starfsráðgjafa
 Kl. 12:45 – 14:00 - Menntun og fræðsla, lykill að jákvæðri starfsþróun
  • Agnes Ósk Snorradóttir - Þegar ég verð stór, ætla ég að verða pollur. Hugmyndir leikskólabarna um framtíðarstarf
  • Líney Björg Sigurðardóttir - Stuðningur og hvatning foreldra til framhaldsskólagöngu barna sinna: Skiptir búseta máli?
  • Svanhildur Svavarsdóttir - Á hverju byggja 10. bekkingar val sitt á framhaldsskólanámi? Skólaheimsóknir og önnur upplýsingaöflun 10. bekkinga um framhaldsskóla og námsbrautir
  • Sigurjóna Jónsdóttir - Árangursmat á náms- og starfsfræðslu í starfsmenntaskóla
  • Lóa Hrönn Harðardóttir - Afburðaárangur í háskólanámi  „...ég byrja ekki á einhverju nema ég ætli að klára það“
                        Kaffihlé 14:15 – 14:45 - Þegar á brattann er að sækja
  • Margo Elisabet Renner - WE WANT TO CONTRIBUTE TOO: The narrative experience of immigrants with career qualifications and their acceptance into the Icelandic labor market
  • María Guðmundsdóttir Gígja - "Þetta skiptir öllu máli". Náms- og starfsráðgjöf í afplánun
                        14:45 – 15:30 - Atvinnumissir og framtíðarsýn
  • Ásta Briem - Í meistaranám við atvinnumissi
  • Margrét Linda Ásgrímsdóttir - „Vinnan göfgar manninn“.  Reynsla atvinnulausra karla 50 ára og eldri af atvinnumissi
  • Gréta Matthíasdóttir - Líðan og lífshamingja í atvinnuleysi: „Svo var hamingjan bara þarna hinum megin við hornið.“